Nú held ég bara að allir séu hættir að lesa þetta... svona í fyllsta trúnaði... en ég er svo sem ekkert búin að leggja fram neitt til lestrar... það gæti kannski verið málið.... Ég er bara búin að vera svo hrikalega busy :)
Ég er búin að lita yfir silfruðu strípurnar mínar sem Móðir Jörð ákvað að gefa mér ansi snemma... svo er auðvitað búið að vera að leggja lokahönd á búningana fyrir helgina... auðvitað er allt á síðasta snúning en bara gaman af því....
Í dag fórum ég og Helga Vala svo að gera drykkjarvagninn tilbúinn :)
Við fundum sem sagt vagninn okkar einhversstaðar úti í móa þar sem hann var búinn að vera einmanna og yfirgefinn... við tókum hann að okkur og í dag vorum við að spreyja hann svona líka skemmtilega að hann er næstum óþekkjanlegur :) From rust to gold.... allavega.. ef einhver Hornfirðingur er að lesa og á bjöllu af reiðhjóli þá sárvantar okkur svoleiðis!
En svo verður fólk auðvitað bara að horfa eftir okkur og sjá alla dýrðina....
Ég er orðin óróleg af tilhlökkun þessa dagana.... ég er byrjuð að fá nett hlátursköst og það er rétt forsmekkurinn af helginni..... Mikið gaman mikið grín.....
Svo verður e-ð hnakkadjamm hérna... Fear Factor og læti... ég ætla nú samt ekki að taka þátt... ég er einfaldlega ekki pappakassi... hef nóg annað að gera. Svo verður nú að vera einhver spenna um vinningshafann If you know what I mean :)
Ég er að skorast alvarlega undan áskorun Jónasar en það verður bara að hafa það.... ég er bara ekkert að spá í þessum hlutum þessa dagana.... þetta verður að koma frá hjartanu... finnst mér allavega :)
Ég vona svo auðvitað að sjá sem flesta niðri á bryggju á föstudagskvöldið klukkan 20. og biðst ég fyrirfram afsökunar ef ég verð ósiðleg í hegðun....... ja eða ekki ;)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli