föstudagur, júlí 25

Jæja ætli ég neyðist ekki til að taka mér bloggfrí!!!
Tölvan heina enn biluð og virðist ekkert vera að rata aftur heim í Hlíðartúnið.
Annars er svo sem nóg annað að gera og hugsa um en þetta. Litla prinsessan mín og skæruliðin bróir hennar voru í heimsókn, fóru í dag. Auðvitað voru foreldrar þeirra líka með í för og þetta var rosa gaman. Þvældumst um allt. Ég fór til dæmis á byggðasafnið og skoðaði Bond húddið... jei.... hahaha. Svo skrapp ég líka á bókasafnið og skoðaði myndir af mér í Götuleikhúsum og í Kabarettnum "Má Ég" það var hrikalega fyndið að skoða þetta. Enn fyndnara var þó að skoða myndir af pabba, frá hans leiklistarárum. Sá gamli var GREINILEGA töffari einu sinni.... en það er nú fyrir heilum gráum kolli og ólettubumbu síðan :)

Í dag fórum við svo upp í Lón og ég og nafna fórum í alræmt klettaklifur...svaka stuð en sú litla var svoldið hrædd við allar köngulærnar.... Skoðaði á heimleiðinni slysstaðinn í Almannaskarðinu og það var varla hægt að sjá hvar þetta var.... bílinn hefur farið í loftköstum þessa 100 metra þarna niður. Hrikalegt þegar svona gerist og ég sá fólk vera að huga að fellihýsunum sýnum áður en það fór upp Lónsmegin. Ég get nú ekki sagt að ég kippi mér mikið upp að keyra þessa brekku upp og niður enda farin að gera það löngu áður en ég fékk próf á drossíu.
Engu að síður hræðilegt og ég vona bara að allir fari varlega á komandi ferðahelgi....
bæjó Lea :**

Engin ummæli: