miðvikudagur, júlí 23

Urrr
Ætlaði að henda teljaranum mínum aftur inn en honum tókst að fokka upp öllu helvítis blogginu. Þoli ekki svona!!!!

Ekki nóg með það að blogger fokkaði big time í mér þá er ég líka í tölvunni í vinnunni sem er hrikalega gömul, held barasta að það sé windows '87 strýrikerfi í henni.

En þýðir víst ekki að svekkja sig á því.
Tölvan heima er biluð AFTUR, ja ok... ennþá... komst í hálfgert lag í smástund og hrundi svo bara aftur... aaarrgg!! Pabbi sagði að ég gæti ekki tengt mína tölvu uppi því ég væri ekki með ADSL mótald... döh!! Nörri eins og ég... of korrs er ég með það. Ætlaði bara að röfla í honum meira seinna því ég hafði ekki tíma. Gat verið... tölvan mín krassaði gjörsamlega líka, áður en ég gat nettengt hana... búhú.

Ég er sem sagt að nota frídaginn minn í að fara upp í vinnu að nördast á netinu.

Einhver BI að skrifa í kommenta kerfið að segja að við vinkonurnar séum sætar. greinilega eitthvað vit í kauða þó hann þori ekki að segja til nafns. Heldur að við séum steik.... hva meinarðu?
Jú ok. Við erum nett ruglaðar svona á stórhátíðum og öðrum samkomum en heilbrigðar og skemmtilegir karakterar sem mikið er í spunnið. Við erum líka allar rosa klárar!!! Segji ekki meir. ÆTLAR EINHVER AÐ MÓMÆLA ÞESSU hehe :Þ

Æ ég er farin heim. dú nott nenn ðiss
Bæjó :*

P.S. Jóhanna... takk fyrir hvað?

Engin ummæli: